09.02.2012 17:40
Skagfirska mótaröðin 2012

Skagfirska mótaröðin hefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í
fjórgangi. Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og
meistaraflokki. Keppni hefst kl. 18.00 á barnaflokki.
Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12. febrúar á
netfangið fritz@mi.is.
Skráningargjald er 1500 kr. á hross og í skráningunni þarf að koma fram
IS númer hrossins og kennitala knapa
Aðgangseyrir er 1000 kr.