09.02.2012 17:40

Skagfirska mótaröðin 2012

Skagfirska mótaröðin 2012


Skagfirska mótaröðin hefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í
fjórgangi. Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og
meistaraflokki. Keppni hefst kl. 18.00 á barnaflokki.

Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12. febrúar á 
                              netfangið fritz@mi.is.
Skráningargjald er 1500 kr. á hross og í skráningunni þarf að koma fram
IS númer hrossins og kennitala knapa
Aðgangseyrir er 1000 kr.

08.02.2012 08:32

Ísmót á Ólafsfirði

Ístölt mót Gnýfara verður haldið laugardaginn 11. febrúar á Ólafsfjarðarvatni, keppt verður í tölti og 100 metra skeið.

Peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í tölti og skeiði og
EKKERT SKRÁNINGARGJALD!!

Hægt er að skrá sig á netfangið hringverskot@gmail.com og fetiframar@gmail.com , fram þarf að koma nafn, aldur, faðir og móðir, upplýsingar um mótið eru veittar í sima 8670251

Ístölt mót Gnýfara verður haldið laugardaginn 11. febrúar á Ólafsfjarðarvatni, keppt verður í tölti og 100 metra skeið. Peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í tölti og skeiði og EKKERT SKRÁNINGARGJALD!! Hægt er að skrá sig á netfangið hringverskot@gmail.com og fetiframar@gmail.com,...

07.02.2012 21:41

Skagfirska mótaröðin 2012

             Skagfirska mótaröðin 2012


Skagfirska mótaröðin hefst 15. febrúar þar sem allir flokkar keppa í
fjórgangi. Keppt verður í barna-, unglinga-, ungmenna-, áhugamanna-, og
meistaraflokki. Keppni hefst kl. 18.00 á barnaflokki.

Skráning þarf að berast fyrir kl 24:00 sunnudagskvöldið 12. febrúar á
                                        netfangið fritz@mi.is.


                        Það verður kjötsúpa í kvöldmat eftir kl 19:00



Næsta mót verður 29. febrúar. Það kvöld verður keppt í fimmgangi í
ungmennaflokki, áhugamannaflokki og meistaraflokki. Börn og unglingar
keppa hins vegar í tölti.

Þriðja mótið verður haldið þann 14. mars. Ungmenni, áhugamenn og meistarar
keppa þá í tölti en börn og unglingar keppa í annað sinn í fjórgangi.

Fjórða og síðasta mótið er svo áætlað 28.mars. Í barnaflokki og
unglingaflokki verður keppt í tölti en aðrir keppa í skeiði. Einnig verður
keppt í smala þetta kvöld en keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið ákveðið
í þeirri grein.

Skagfirska mótaröðin er stigakeppni þar sem stigahæsti keppandinn í
hverjum flokki fyrir sig hlýtur verðlaun fyrir samanlagðan árangur á mótinu.

03.02.2012 14:24

Barna,-og unglingastarfið

Hópaskipting í helgarstarfi

Fyrsta kennsluhelgin í helgarstarfi hestamannafélaganna 4. og 5. Febrúar..  Búið er að raða í hópa og gera tímaáætlun vegna kennslunnar um helgar,  skipting í hópa getur breyst og líka tímarsetningar.  Reiðkennarar eru Hafdís Arnardóttir og Sif Jónsdóttir.  

Kennt bæði  laugardag og sunnudag  -- höllinni skipt í tvennt  -  tveir hópar í kennslu í einu.

11:00 - 11:45      hópar    5 og  3

11:55 - 12:40       hópar    7 og  4

12:50 - 13:35       hópar    6 og  2

13:45 - 14:30       hópur    1

 

 

Hópur  1

Ásdís Eva Halldórsdóttir

Pálmi Þórsson

Telma Ösp Einarsdóttir

Unnur Rún Sigurpálsdóttir

 

Hópur  2

Halla Margrét Sigurðardóttir

Herdís María Sigurðardóttir

Ólöf Bára Birgisdóttir

Sara Líf Elvarsdóttir

 

Hópur 3

Alma Karen Sigurðardóttir

Ásta Lilja Gísladóttir

Hildur Heba Einarsdóttir

Sóley Dögg Maríudóttir

 

Hópur 4

Helena Erla Árnadóttir

Ingiberg Daði Kjartansson

Katrín Ösp Bergsdóttir

Sólrún Silfá Guðmundsdóttir

 

Hópur 5

Áróra Árnadóttir

Ásgrímur Þór Kjartansson

Sigurður Pétur Unnarsson

 

Hópur 6

Flóra Rún Haraldsdóttir

Hrefna Guðrún Gústavsdóttir

Þórgunnur Þórarinnsdóttir

Viktoría Björnsdóttir

 

Hópur 7

Arndís Katla Óskarsdóttir

Gísli Kristjánsson

Halldóra Sölvadóttir

Jóhann Orri Unnarsson

Sindir Sölvason

 

----------------- Með fyrirvara um breytingar ------------

02.02.2012 12:53

Úrslit úrtöku fyrir KS-deildina

Í gærkvöldi fór fram úrtaka fyrir átta sæti í meistaradeild Norðurlands KS-deildinni og urðu úrslit þessi :

Fjórgangur

Knapi  Hestur Eink

  1. Líney María Hjálmarsdóttir  Þytur frá Húsavík                   6,63
  2. Ísólfur Líndal Þórisson         Kristófer frá Hjaltastaðahv    6,40
  3. Fanney Dögg Indriðadóttir    Grettir frá Grafarkoti            6,37
  4. Baldvin Ari Guðlaugsson      Senjor frá Syðri-Ey                6,33
  5. Þorbjörn H Matthíasson         Blakkur frá Bergstöðum        6,13
  6. Arnar Bjarki Sigurðarson       Kolfinna frá Sunnuhvoli        6,07
  7. Elvar Logi Friðriksson           Stuðull frá Grafarkoti             6,03
  8. Þorsteinn Björnsson              Leynir frá Hólum                   6,00
  9. Guðmundur Tryggvason        Ás frá Skriðulandi                  5,90
  10. Viðar Bragason                     Björg frá Björgum                  5,70
  11. Sveinn Brynjar Friðriksson    Synd frá Varmalæk                5,63
  12. Þórarinn Ragnarsson              Hrafnhetta frá Steinnesi        5,60
  13. Hekla Katarína Kristinsdóttir           Hrymur frá Skarði          5,57
  14. Halldór Þorvaldsson               Safír frá Barði                         5,13
  15. Þóranna Másdóttir                  Ræll frá Gauksmýri                4,93

 

Fimmgangur

Knapi  Hestur Eink

  1. Ísólfur Líndal Þórisson          Kvaran frá Lækjamóti              6,60
  2. Sveinn Brynjar Friðriksson    Glaumur frá Varmalæk             6,33
  3. Þórarinn Ragnarsson              Mökkur frá Hólmahjáleigu     6,20
  4. Viðar Bragason                      Sísi frá Björgum                     6,17
  5. Þorsteinn Björnsson               Kylja frá Hólum                      6,10
  6. Hekla Katarína Kristinsdóttir            Hringur frá Skarði         6,07
  7. Baldvin Ari Guðlaugsson      Jökull frá E-Rauðalæk                6,07
  8. Þorbjörn H Matthíasson         Gýgja frá L-Garði                    6,07
  9. Elvar Logi Friðriksson           Návist frá Lækjamóti                5,87
  10. Fanney Dögg Indriðadóttir    Kasper frá Grafarkoti              5,53
  11. Líney María Hjálmarsdóttir   Ronía frá Íbishóli                      5,23
  12.  Guðmundur Tryggvason       Trú frá Árdal                            5,20
  13.  Arnar Bjarki Sigurðarson      Arnar frá Blesastöðum2A        5,03
  14. Halldór Þorvaldsson               Draupnir frá Dalsmynni          4,93
  15. Þóranna Másdóttir                  Aska frá Dalbæ                      4,13

Samanlagður árangur skar svo úr um hverjir höfðu tryggt sér þátttökurétt í deildinni í vetur:

1.      Ísólfur Líndal Þórisson                    6,500
2.      Baldvin Ari Guðlaugsson                 6,202
3.      Þorbjörn H Matthíasson                  6,102
4.      Þorsteinn Björnsson                        6,050
5.    Sveinn Brynjar Friðriksson    5,982
6.      Elvar Logi Friðriksson                     5,952
7.      Fanney Dögg Indriðadóttir              5,948
8.      Viðar Bragason                                5,935
 
9.      Líney María Hjálmarsdóttir               5,932
10.  Þórarinn Ragnarsson                          5,900
11.  Hekla Katarína Kristinsdóttir             5,818
12.  Guðmundur Tryggvason                   5,550
13.  Arnar Bjarki Sigurðarson                   5,548
14.  Halldór Þorvaldsson                          5,032
15.  Þóranna Másdóttir                             4,532

02.02.2012 12:28

Skemmtilegt viðtal við Tóta Eymundar


Hestafréttir.is höfðu samband við Þórarinn Eymundsson tamningameistara og kennara við Hólaskóla.

Hvernig lýst þér á breytingarnar á sýningu kynbótahrossa á Landsmóti?

"Vel, mínar fyrstu minningar af kynbótasýningum á Vindheimamelum eru einmitt af yfirlitssýningu á hringvellinum þar. Ég er nú ekki svo gamall þannig að ekki er svo ýkja lang síðan þetta tíðkaðist. Að mínu mati eigum við að stefna á að rækta keppnishesta. Hestar sem geta náð góðum árangri á beinni brautu en virka síður á hringvelli mega missa sín fyrir mér og þó fyrr hefði verið. Hestarnir koma þá einnig betur tamdir til sýninga sem er gott. Sumir segja að það þurfi að temja svo mikið til þess að geta riðið á hringvelli, þetta er alrangt. Góð reiðmennska og tamning tekur ekki lengri tíma en slæm." segir Þórarinn.

Telur þú eins og fyrirkomulagið er lagt fyrir vel framkvæmalegt?

"Já, hins vegar vakna spurningar hvernig á að meta dóm á Landsmóti við aðra dóma. Bæði vegna yfirlits á hringvelli en líka vegna 8 ferða í fordómi í stað 10. Spurningar sem kannski Þorvaldur Árnason gæti svarað.
Hestarnir verða fyrir framan dómara allan tímann og þó einn fari fram úr á brokki þá sjást báðir. Einhver viðkvæm þola ekki að fá hesta aftan undir sig og önnur verða betri. Ég tel að hross þurfi að þola það vegna þess að ég hugsa um keppnishestinn. Einnig geta knapar nýtt sér orku frá öðrum hestum inn á vellinum og hestar sem virka þarna eru heppilegri til undaneldis að mínu mati. En ég er hugsi yfir hvort ríða eigi upp á báðar hendur eða hvort knapar þurfi að skrá sig inn á hægri eða vinstri hönd í yfirlistsýningu, ein leið er að allir ríði upp á vinstri hönd, er það sanngjarnt? Þeir sem ætla að hækka skeið á beinni brautu hafa bara eina tilraun og því verða dómarar að vera óragir að hækka þó þeir sjái bara einn sprett. Þetta er mesta breytingin því eins og kerfið er í dag er hægt að sýna skeið mikið oftar, það verður þvi óneitanlega pressa á knapa og hesti í þessari einu ferð, sérstaklega í ljósi þess að knapar hafi haft 8 ferðir í fordómi og þar mun því heldur ekki verða rými fyrir mislukkaðann skeiðsprett eða stökksprett því ekki verður auðvelt að hvellhleypa inn á hringvelli, ennþá þarf mikla ferð og afköst til að fá háar tölur á stökki" segir Þórarinn.

Nokkur umræða um að 3 hringir á fullum afköstum vera full mikið fyrir yngstu hrossin. Hvaða skoðun hefur þú á því?

"Trúlega verður ekki bannað að hægja niður og jafnvel stoppa augnablik en þetta er vissulega hætta. Með yngri hrossin verður knapinn að hafa val hvað hann ríður marga hringi áður en hann fer að undirbúa skeiðsprett og yfirgefur hringvöllinn. Breytingar kalla alltaf á aðrar breytingar t.d. í sýningartækni, fagráðið verður að gæta þess að ígrunda þessa breytingu frá öllum mögulegum hliðum"segir Þórarinn.

Að lokum.

"Kynbótasýningar á hringvelli eru jákvætt skref að mínu mati eins og ég færði rök fyrir hér að ofan en hins vegar er spurning hvort ekki væri betra að endurskoða þá kerfið í heild sinni því óneitanlega vakna ýmsar spurningar við þessar fyrirhuguðu breytingar," segir Þórarinn að lokum nokkuð jákvæður á þessar breytingar.

02.02.2012 10:51

Frá félögum

Halló halló athugið þetta !!

Við óskum eftir hryssum til leigu sumarið 2012 með það að markmiði að halda þeim og fá folöld undan þeim sumarið 2013. Til greina koma dæmdar hryssur sem verða helst að hafa eignast folald áður eða kasta sumarið 2012.

Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið hryssur@hjaltastadahvammur.is með upplýsingum um nafn og IS-númer hryssunnar, umsögn, ca. hvenær hryssan á að kasta (ef fylfull), staðsetningu á landinu og verðhugmynd. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og öllum verður svarað.

http://hjaltastadahvammur.is 

29.01.2012 23:13

Nýtt og spennandi

Þjálfun í upphafi vetrar

Þórarinn Eymundsson

Þórarinn Eymundsson

Mánudagskvöldið 30. janúar mun Þórarinn Eymundsson reiðkennari fjalla um þjálfun hrossa í upphafi vetrar. Fundurinn hefst í Tjarnarbæ kl 20:00 þar sem Þórarinn rennir yfir undirstöðu atriði varðandi þjálfun hrossa sem eru ný komin á hús. Þar á eftir verður farið yfir í reiðhöllina Svaðastaði þar sem fram fer sýnikennsla á þeim atriðum sem um var rætt.

Allir hestamenn eru velkomnir og hvattir til að mæta og bæta við sig fróðleik.

27.01.2012 13:58

Aðsent

Hestadagar í Reykjavík


Hestadagar í Reykjavík
er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars - 1. apríl næstkomandi. 

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í   reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll.

Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum.  Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman.   Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: "Ístölt - þeir allra sterkustu".

Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni.  Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl.  Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á www.icelandichorsefestival.is

Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!


Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars - 1. apríl næstkomandi. 

Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í   reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll.

Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum.  Í ráðhúsi Reykjavíkur verður eitthvað hestatengt í boði allan daginn, söngur, fræðsla og gaman.   Um kvöldið endum við svo á að horfa á flottustu töltara landsins á skautasvellinu í Laugardal: "Ístölt - þeir allra sterkustu".

Sunnudagurinn er tileinkaður æskunni.  Sýningin Æskan og hesturinn er fjölskylduhátíð í Reiðhöllinni í Víðidal sem öll hestamannafélögin á stórhöfuðborgarsvæðinu standa að. Haldnar verða tvær sýningar á sunnudeginum 1.apríl.  Sýning þessi hefur alltaf verið gríðarlega vinsæl og þar má sjá framtíðarknapa Íslands leika listir sínar með fákum sínum.

Endanleg dagskrá og nánari upplýsingar um Hestadaga í Reykjavík verður birt á næstu dögum inni á www.icelandichorsefestival.is

Viðburður sem engin áhugamaður um íslenska hestinn ætti að missa af!

26.01.2012 09:44

Barna,-og unglingastarfið

Hópaskipting vegna vikulegastarfs hestamannafélagann.  Vinsamlega látið vita ef þið komist ekki með sms eða hringja..

                                           ---    Birt með fyrirvara um breytingar.---    

 

                                                                Þriðjudag.                                           Fimmtudag

17:00 - 17:45                                      Hópur 3                                                Hópur 3

17:55 - 18:40                                      Hópur 4 og 5                                       Hópur 2

18:50 - 19:35                                      Hópur 6 og 7                                       Hópur 1

19:45 - 20:30                                      Hópur 1 og 2

 

 

                Hópur 1

               Ásdís Elvarsdóttir

Sylvía Björnsdóttir

 Ragnheiður Petra Óladóttir

 

Hópur 2

Aníta Atladóttir

 Úrsúla  Lindudóttir

 Anna Baldvina Vagnsd.

Viktoría Elvarsdóttir

 

Hópur 3

Stella Finnbogadóttir

 Benni Rúnarsson

 Stefanía Sigfúsdóttir

Guðmunda Góa Haraldsdóttir

Þórir Árni Jóelsson

 

Hópur 4

Þórdís Pálsdóttir

 Ragna Vigdís Vésteinsdóttir

Hafrún Halldórsdóttir

Rakel Ingimarsdóttir

 

Hópur 5

Aron Ingi Halldórsson

Jón Hjálmar Ingimarsson

Júlía Pálsdóttir

 

Hópur 6

Freydís Þóra Bergsdóttir

Guðný Rúna Vésteinsdóttir

Heimir Sindri Þorláksson

 

Hópur 7

Hólmar Freyr Birgisson

Freyja Sól Bessadóttir    

Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir

Stefanía Malen Halldórsdóttir

25.01.2012 08:37

Úrtaka fyrir KS-deildina

Meistaradeild Norðurlands frestar úrtöku fyrir KS-deildina sem átti að vera í kvöld í Svaðastaðahöllini

til miðvikudagsins 1. febrúar.

 

Spáð er vonsku veðri á Norðurlandi

24.01.2012 15:14

Barna,-og unglingastarfið

I dag er mæting með hest og svo verður raðað í hópa fyrir fimmtudag

Áætlað er 20 mín á hvern hóp og sá fyrsti mæti þá klukkan 17:00 og svo næsti 20 mínútum seinna.

Ef einhver kemst ekki vinsamlega látið þá vita í síma 847 2685 Stína



17:00 -
1 Stella Finnbogadóttir
1 Ragnheiður Petra Óladóttir
1 Benni Rúnarsson
1 Úrsúla Ósk Lindudóttir

17:20 -
2 Anna Margrét Hörpudóttir
2 Áróra Árnadóttir
2 Helena Erla Árnadóttir
2 Telma Ösp Einarsdóttir

17:45 -
3 Jón Hjálmar Ingimarsson
3 Rakel Eir Ingimarssdóttir
3 Þórir Árni Jóelsson
3 Dagmar Ólína Gunnlaugsdóttir

18:10 -
4 Aníta Ýt Atladóttir
4 Freyja Sól Bessadóttir
4 Freydís Þóra Bergsdóttir
4 Guðný Rúna Vésteinsdóttir
4 Ragna Vigdís Vésteinsdóttir

18:30 -
5 Orri Sigurbjörn Þorláksson
5 Heimir Sindri Þorláksson
5 Guðmunda Góa Haraldsdóttir
5 Hólmar Björn Birgisson

18:50 -
6 Sylvía Björnsdóttir
6 Stefanía Sigfúsdóttir
6 Anna Baldvina Vagnsdóttir

24.01.2012 08:39

KS-Deildin úrtaka

KS-deildin

Það stefnir í hörku úrtöku á miðvikudaginn 25.janúar í Svaðastaðahöllinni. Fjórtán knapar eru skráðir til leiks að keppa um þau sex sæti sem laus eru.
Veislan hefst kl: 20:00 Frítt inn!

                                                  Ráslistar
Fjórgangur
1. Baldvin Ari Guðlaugsson
Senjor frá Syðri-Ey F. Prins frá E-Rauðalæk M. Dýa frá Skeggsstöðum
2. Elvar Logi Friðriksson
Stuðull frá Grafarkoti F. Gammur frá Steinnesi M. Sál frá grafarkoti
3. Þorbjörn H Matthíasson
Blakkur frá Bergstöðum F. Faldur frá Glæsibæ M. Glóa frá Bergstöðum
4. Hekla Katarína Kristinsdóttir
Hrymur frá Skarði F. Galsi frá Sauðárkr M. Hremmsa frá Skarði
5. Þóranna Másdóttir
Ræll frá Gauksmýri F. Galsi frá Sauðárkr M. Rögg frá Y-Skógum
6. Sveinn Brynjar Friðriksson
Synd frá Varmalæk F. Sjóli frá Þverá M. Berglind frá Varmalæk
7. Viðar Bragason
Amanda Vala frá Skriðul F. Gammur frá Steinnesi M. Freysting frá Akureyri
8. Ísólfur Líndal Þórisson
Kristófer frá Hjaltastaðahv F. Stígandi frá Leysingjast M. Kosning frá Y-Reykjum
9. Arnar Bjarki Sigurðarson
Kolfinna frá Sunnuhvoli F. Kolskeggur frá Oddhóli M. Urður frá Sunnuhvoli
10. Þórarinn Ragnarsson
Hrafnhetta frá Steinnesi F. Gammur frá Steinnesi M. Hnota frá Steinnesi
11. Halldór Þorvaldsson
Safír frá Barði F. Markús frá Langholtsparti M. Gráskjóna frá Grásteini
12. Líney María Hjálmarsdóttir
Þytur frá Húsavík F. Ypsilon frá Holtsmúla I M. Hrafnkatla frá Húsavík
13. Þorsteinn Björnsson
Leynir frá Hólum F. Rökkvi frá Hárlaugsst M. Íþrótt frá Húnavöllum
14. Fanney Dögg Indriðadóttir
Grettir frá Grafarkoti F. Dynur frá Hvammi M. Ótta frá Grafrarkoti

Fimmgangur
1. Arnar Bjarki Sigurðarson
Arnar frá Blesastöðum2A F. Aron frá Strandarhöfði M. Aría frá Selfossi
2. Þóranna Másdóttir
Aska frá Dalbæ F. Trúr frá Auðholtshjáleigu M. Stemma frá Dalbæ
3. Viðar Bragason
Sísi frá Björgum F. Brjánn frá Reykjavík M. Draumadís frá Breiðabólsst
4. Þórarinn Ragnarsson
Mökkur frá Hólmahjáleigu F Hilmir frá Sauðárkr M. Kapra frá Hellu
5. Baldvin Ari Guðlaugsson
Jökull frá E-Rauðalæk F. Óður frá Brún M. Spyrna frá Hellulandi.
6. Fanney Dögg Indriðadóttir
Kasper frá Grafarkoti F. Klettur frá Hvammi M. Kæti frá Grafarkoti
7. Halldór Þorvaldsson
Draupnir frá Dalsmynni F. Frami frá Hólum M. Iða frá Dalsmynni
8. Hekla Katarína Kristinsdóttir
Hringur frá Skarði F. Þóroddur frá Þóroddsst M. Móa frá Skarði
9. Sveinn Brynjar Friðriksson
Glaumur frá Varmalæk F. Smári frá Skagsströnd M. Gletting frá Varmalæk
10. Þorbjörn H Matthíasson
Gýgja frá L-Garði F. Snerrir frá Bæ I M. Anna frá L-Garði
11. Líney María Hjálmarsdóttir
Ronía frá Íbishóli F. Huginn frá Haga I M. Gnótt frá Y-Skörðugili
12. Þorsteinn Björnsson
Kylja frá Hólum F. Glampi frá Vatnsleysu M. Þýða frá Hólum
13. Elvar Logi Friðriksson
Maríuerla frá Gauksmýri F. Roði frá Múla M. Erla frá Gauksmýri
14. Ísólfur Líndal Þórisson
Kvaran frá Lækjarmóti F. Sveinn-Hervar frá Þúfu M. Rauðhetta frá Lækjarm

23.01.2012 19:35

Barna-, og unglingastarfið

Skráning á námskeið !

Við viljum benda þeim á sem eiga eftir að skrá sig á námskeiðin í barna og ungmennastarfi hestamannafélaganna

- Léttfeta - Stíganda - Svaða -

að drífa í því.

Fyrsti dagur í vikulegastarfinu er á morgun --
þriðjudag -24. janúar -
helgarstarfið hefst helgina 4. - 5. febrúar.

hægt er að skrá sig með e-maili á lettfetar@gmail.com 
eða í síma 847 2685 - Stína eða 894 7558 - Magga

Stjórnin

14.01.2012 10:30

Frá æskulýðsnefndum félaganna

Vetrarstarfið

Eins og glöggir hafa séð þá var auglýst eftir reiðkennurum og eða leiðbeinendum í Sjónhorninu og þá styttist í að vetrarstarf hestamannafélagana byrji. Áætlað er að fyrirkomulag á kennslu verði með líku sniði og síðastliðinn vetur, þ.e.
vikulega starfið - kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 17:00 ,
helgarstarfið - kennt verður aðra hverja helgi = 5 helgar

Áætlað er að vikulega starfið hefjist þriðjudaginn 24. janúar, þar sem þátttakendum verður skipt í hópa og helgarstarfið byrjar laugardaginn 28. janúar, athugið að skiptingar í hópa geta breyst eftir fyrstu tímana.

Skráningar á netfangið lettfetar@gmail.com  í síma 847 2685 Stína eða 894 7558 Magga.
Taka skal fram hvort skráð sé á helgar námskeiðin eða á vikulegu námskeiðin, aldur og getu (hversu vant) heimili og símanúmer hjá foreldri/forráði.
 
Einnig verða teknar niður skráningar á STÓR-BINGÓinu sem verður haldið sunnudaginn 22. janúar í Tjarnabæ, frá kl. 14:00. Allur ágóði rennur til æskulýðsstarfs hestamannafélaganna.

Bingó !
Sunnudaginn 22. janúar klukkan 14:00 verður haldið STÓR BINGÓ í Tjarnabæ og greint frá hvaða kennarar halda utan um vetrarstarfið í vetur. Stór glæsilegir vinningar fyrir hestamenn og einnig þá sem eru ekkert í hestum
 

Grunnskólamót:
Búið er að setja niður dagsetningar á Grunnskólamót hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra, mótin hefjast öll kl. 13:00

19.febrúar á Hvammstanga - keppt verður í:
Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Tölt 4. - 7. og 8. - 10 bekkur, Skeið 8. - 10. bekkur

11.mars á Sauðárkróki - keppt verður í:
Fegurðarreið 1. -3. bekkur, Fjórgangur 4. - 7. og 8. - 10 bekkur, Skeið 8. - 10. bekkur
 
25.mars á Blönduósi - keppt verður í:
Þrautabraut 1. -3. bekkur, Smali 4. - 7. og 8. - 10 bekkur, Skeið 8. - 10. Bekkur

ATH. keppni í skeiði er með fyrirvara um veður og aðstæður á hverjum stað.

Æskulýðsnefndir Léttfeta, Stíganda og Svaða

  • 1
Flettingar í dag: 108
Gestir í dag: 44
Flettingar í gær: 146
Gestir í gær: 60
Samtals flettingar: 152173
Samtals gestir: 43122
Tölur uppfærðar: 9.2.2012 19:16:04

Vafraðu um

Tenglar